sudurnes.net
Þróttarar sprungu á limminu í síðari hálfleik og eru úr leik í bikarnum - Local Sudurnes
Þróttarar úr Vogum eru úr leik í Coca cola bikar karla í handknattleik eftir tap gegn sterku liði Fram í dag. Þróttarar léku vel í fyrri hálfleiknum en það var sem úthaldið kláraðist í þeim síðari og var sigur Fram aldrei í hættu. Framliðið náði þriggja marka forystu snemma í leiknum, 6-3 en þá hrökk Þróttaraliðið, með Heimi Örn Árnason fremstan í flokki, loksins í gang og jöfnuðu Þróttarar leikinn í stöðunni 7-7. Úrvalsdeildarlið Fram var svo tveimur mörkum yfir í hálfleik, 11-9. Síðari hálfleikurinn var erfiður fyrir Þróttara sem komu boltanum einungis sex sinnum í mark Framara, en fyrsta korterið í síðari hálfleik höfðu Þróttarar einungis sett eitt mark. Þegar sjö mínútur voru eftir af leiknum var munurinn svo orðinn tíu mörk. Staðan 23-13 Fram í vil. Lokatölur í leiknum urðu svo 27-15 og Þróttarar eru úr leik í bikarnum þetta árið. Meira frá SuðurnesjumÞróttarar lögðu KR-inga í Coca-Cola bikarnumDýrmæt stig í súginn hjá NjarðvíkingumTap hjá Keflavík – Njarðvík á toppinnÞróttur í góðri stöðu eftir 4-0 sigur gegn Hvíta RiddaranumFyrsta tap Njarðvíkinga – Víðir í fjórða sæti eftir sigur í markaleikÖruggur sigur kom Grindavík á topp Inkasso-deildarinnarVíðir með fullt hús stiga eftir sigur á Einherja – Hafa aðeins fengið á sig [...]