sudurnes.net
Þróttarar hefja knattspyrnutímabilið á laugardag - Leika í Reykjaneshöll - Local Sudurnes
Meistaraflokkur Þróttar í Vogum undirbýr sig af fullum krafti fyrir 3. deildina í knattspyrnu en liðið komst sem kunnugt er upp um deild, í fyrsta skipti í sögu félagsins, eftir frábært tímabil í 4. deildinni síðastliðið sumar. Fyrsti mótsleikur Þróttar á þessu tímabili fer fram í Reykjaneshöllinni á laugardag þegar liðið hefur leik á Fótbolta.net mótinu. Þróttarar fá lið Knattspyrnufélags Rangæinga, KFR, í heimsókn. Rangæingar leika einnig í 3. deildinni, þannig að það verður áhugavert að fylgjast með þessum fyrsta leik Þróttar á tímabilinu. Leikurinn fer eins og áður segir fram í Reykjaneshöllinni á laugardaginn og hefst klukkan 17.20. Fyrir þá sem vilja koma sér í gírinn fyrir leikinn er tilvalið að kíkja í Vogana í getraunakaffi knattspurnudeildarinnar á milli kl. 11-13 og gæða sér á ný-möluðu kaffi að hætti Þróttara. Meira frá SuðurnesjumNjarðvíkingar í fallsæti eftir tap gegn KFSólseturshátíðarmótið í golfi verður haldið þann 22. júníYngri flokkalið Njarðvíkinga kláruðu vetrarvertíðina með stælÞróttarar töpuðu úrslitaleik 4. deildar eftir spennandi vítaspyrnukeppniStórt tap hjá Grindavík í úrslitaleiknum – Fengu á sig fleiri mörk en í riðlakeppninniMagnús með Íslandsmet í loftriffli unglingaNjarðvíkursigur í Ásgarði – Mögnuð endurkoma Tyson-ThomasPáll áfram með Þrótti – Hefur skorað 44 mörk í 79 leikjumSindri Kristinn til reynslu hjá einu sterkasta liði NoregsSameinað [...]