Þróttarar fá öflugan framherja
Sóknarmaðurinn Pape Mamadou Faye hefur gengið í raðir Þróttar Vogum, sem leikur í 2. deildinni.
Pape, sem er 28 ára, er kominn með leikheimild með liðinu og er því löglegur með Þrótti í 1. umferð deildarinnar þegar liðið mætir Dalvík/Reyni.
Pepe, sem leikið hefur með nokkrum liðum hér á landi en hann lék í Færeyjum síðasta sumar með TB/FCS/Royn þar skoraði hann fimm mörk í ellefu leikjum í færeysku úrvalsdeildinni.