sudurnes.net
Þrír öflugir skrifa undir hjá Víði - Local Sudurnes
Patrik Snær Atlason skrifaði undir sinn fyrsta samning við Víðir en hann kom til liðsins í fyrra og spilaði þá 20 leiki og skoraði í þeim 9 mörk. Patrik er framherji sem hefur meðal annars spilað með Víking Reykjavík uppeldisfélagi sínu, Njarðvík og ÍR. Jón Tómas Rúnarsson er uppalinn Keflvíkingur sem kom til Víðis á síðasta tímabili. Hann framlengdi samning sinn við Víðir en hann lék 18 leiki fyrir félagið í fyrra. Jón Tómas skellti sér í heimsreisu í vetur og hefur verið að koma sterkur inn eftir heimkomuna, segir í tilkynningu frá Víði. Jón Tómas er varnarmaður og er fæddur árið 1996 Nathan Ward kemur frá GG og skrifaði undir samning við Víðir í dag. Hann kemur frá Skotlandi og er kantmaður fæddur árið 1995. Búsettur í Grindavík. Víðsmenn segja í tilkynningu að Nathan hafi stimplað sig vel inn í liðið í vetur og verður spennnandi að fylgjast með honum. Meira frá SuðurnesjumVíðir í toppbaráttuna eftir sigur á NjarðvíkRamsay og Ray Anthony þjálfa GG í 4. deildinniNjarðvíkingar fá liðstyrk í fótboltanumTók skóna fram á ný og setti fimm mörkJafnt hjá Keflavík gegn Fylki – Rise stimplaði sig innReynsluboltar og markamaskína til NjarðvíkurNjarðvíkingur keppir fyrir Noregs hönd á sterku borðtennismótiRamsay og Ray Anthony skoruðu [...]