Nýjast á Local Suðurnes

Þrír framlengja við Njarðvík

Mynd: KKD. Njarðvíkur

Nýverið framlengdu þeir Logi Gunnarsson, Jón Arnór Sverrisson og Maciek Baginski samningum sínum við Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur.

Stjórn Körfuknattleiksdeildarinnar er hæstánægð með áframhaldandi veru þeirra kappa í Ljónagryfjunni, segir í tilkynningu, enda mikilvæg púsl í undirbúningi fyrir næstu leiktíð.

„Það er ánægjulegt fyrir okkur í þjálfarateyminu að menn séu strax farnir að horfa til næstu leiktíðar. Margt gott átti sér stað hjá Njarðvíkurliðinu á tímabilinu en auðvitað voru það vonbrigði að vinna ekki bikarinn og detta svo út í 8-liða úrslitum. Maður finnur það á mönnum að þá langar til þess að gera enn betur á næstu leiktíð og því mikilvægt að okkar sterkustu menn á borð við Jón, Loga og Maciek séu búnir að framlengja við félagið. Á næstu misserum verður frekari tíðinda að vænta af okkur,“ sagði Einar Árni Jóhannsson þjálfari liðsins.