sudurnes.net
Þjálfarar Fjölnis saka Keflavík/Njarðvík um svindl í undanúrslitum Íslandsmótsins - Local Sudurnes
Þjálf­ar­ar­ar B-liðs Fjöln­is í 2. flokki karla í knatt­spyrnu og fram­kvæmda­stjóri Fjöln­is hafa birt pist­il á heimasíðu fé­lags­ins vegna leiks gegn sam­eig­in­legu liði Kefla­vík­ur og Njarðvík­ur í undanúr­slit­um Íslands­móts­ins sem fram fór síðasta miðviku­dag. Hon­um lauk með 6:4 sigri Kefla­vík­ur/​Njarðvík­ur sem síðan vann KA, 2:1, í úr­slita­leik Íslands­móts B-liðanna í gær. Pistill þjáfara Fjölnis í heild sinni: Eins og ljóst er orðið þá þá lent­um við í öm­ur­legu at­viki í á miðviku­dag­inn gegn Kefla­vík í leik okk­ar í undanúr­slit­um í 2 flokki karla í B-liðum. Upp­hafið er að við heyr­um óánægju radd­ir for­eldra leik­manna í Kefla­vík sem varð til þess að við skoðuðum málið frek­ar og varð maður í raun reiðari og reiðari. Hversu ósann­gjarnt er þetta einnig gagn­vart okk­ar drengj­um sem lagt hafa mikið á sig við að kom­ast í þenn­an leik og falla síðan úr leik á þenn­an hátt. Okk­ur finnst að þeir hafi haft rangt fyr­ir sér með þessu leik­manna­vali og hagað sér mjög óíþrótta­manns­lega. En um hvað snýst málið. Kefla­vík not­ar tvo leik­menn í B-liðinu sem ein­göngu hafa spilað með Njarðvík í 2 deild­inni í sum­ar eða 29 leiki og 20 leiki með A liði Kefla­vík­ur í 2 flokki þar sem þeir byrjuðu ALLA LEIKI ! [...]