sudurnes.net
Taplaust B-lið Njarðvíkur fær Keflavík í heimsókn í kvöld - Local Sudurnes
B-lið Njarðvíkur sem leikur í annari deildinni í körfuknattleik tekur á móti efsta liði Dominos-deildarinnar, Keflavík, í 8-liða úrslitum Powerade-bikarsins í kvöld. Leikurinn fer fram í Ljónagryfjunni í Njarðvík og hefst klukkan 19.15. Njarðvíkingarnir hafa ekki tapað leik í vetur, unnið alla sína leiki í deild og bikar og eru sem stendur í efsta sæti deildarinnar. Á leið sinni í 8-liða úrslitin lagði liðið meðal annas 1. deildarlið Reynis úr Sandgerði. Keflvíkingar eru sem fyrr segir í efsta sæti Dominos-deildarinnar og hafa einungis tapað tveimur leikjum í vetur. Þó leið Keflvíkinga í undanúrslitin virðist greið eru B-liðs menn Njarðvíkinga á öðru máli, Sverrir Þór Sverrisson nýráðinn þjálfari kvennaliðs Keflavíkur og leikmaður B-liðsins sagði leikinn gegn Keflavík leggjast vel í menn: “Sá leikur leggst bara vel í mig – Við tökum þá klárlega.” Sagði Sverrir í léttum tón. Meira frá SuðurnesjumÁgúst með brons á Evrópumóti unglinga í taekwondoVíðir tekur á móti Fylki í 16-liða úrslitum BorgunarbikarsinsSæbjörg er hressasti frambjóðandinn – Skellti í #djöfulsinsflipp myndband!Ragnheiður Sara í þriðja sæti eftir dag 1 – Myndband!Grindvíkingar völtuðu yfir Leikni og hirtu toppsætiðArnór Ingvi vill fara frá AEK: “HM er næsta sumar og ég þarf að hugsa minn gang”Bryngeir hættur með VíðiSlæm tölfræði hliðholl Njarðvíkingum [...]