Nýjast á Local Suðurnes

Tap hjá Keflavík en sigur hjá Njarðvík

Tinda­stóll lagði Kefla­vík í toppslag 6. um­ferðar Dom­in­os-deild­ar karla í körfuknatt­leik, en loka­töl­ur urðu 97-88. Tindastóll hafði undirtökin allan leikinn, en Keflvíkingar náðu aðeins að sýna klæranr undir lokin, sem dugði þó ekki til.

Reggie Dupree skoraði 19 stig , Ágúst Orra­son 15, Magnús Már Trausta­son 13, Ca­meron Forte 12 og tók ​11 frá­köst að auki.

Njarðvíkingar lögðu Þórsara að velli í Dóminos-deild karla í körfuknattleik í kvöld. Leikið var á Akureyri og urðu lokatölur 85-92.

Ter­rell Vin­son var stigahæstur Njarðvíkinga með 2 stig, Logi Gunn­ars­son skoraði 22, Maciek Bag­inski 15, Odd­ur Rún­ar Kristjáns­son 12.