Nýjast á Local Suðurnes

Suðurnesjamennirnir sáu um markaskorunina fyrir U21 landsliðið – Dugði þó ekki til

U21 árs landsliði Íslands tókst ekki að næla sér í sæti í lokeppni EM í Póllandi á næsta ári þegar liðið tapaði 2-4 gegn Úkraínu í lokaleik riðilsins í gærkvöld. Ísland endaði í 3. sæti riðilsins.

Suðurnesjamennirnir í liðinu stóðu þó fyrir sínu og sáu um markaskorunina í leiknum, Grindvíkingurinn Daníel Leó Grétarsson skoraði fyrra mark liðsins og kom Íslendingum þannig yfir á 22. mínútu. Keflvíkingurinn Elías Már Ólafsson skoraði svo síðara mark Íslands undir lok leiksins, en Elías Már átti mjög góðan leik í gær.

Mark Daníels má sjá hér.