Suðurnesjamenn með fjölda verðlauna á Redneck-mótinu í Rallycrossi – Myndband!
Suðurnesjamenn voru sigursælir á Redneck-bikarmótinu í Rallýcrossi sem fram fór um helgina. Ágúst Aðalbjörnsson sigraði mótið, í opnum flokki, Sigurður Arnar Pálsson lenti í öðru sæti og Sveinbjörn Sveinbjörnsson, sem keppti á sínu fyrsta móti, lenti í því þriðja. Suðurnesjamenn hirtu einnig öll verðlaun í 2000 flokki, auk fjölda annara verðlauna.
Á myndbandinu hér fyrir neðan má sjá þá þrjá, Ágúst, Sigurð og Sveinbjörn, etja kappi.