sudurnes.net
Suðurnesjamenn í sögulegum EM-hóp Íslands - Local Sudurnes
Körfuknattleikssamband Íslands hefur valið hópinn fyrir lokakeppni U20 á Krít í júlímánuði en þetta verður í fyrsta sinn sem Ísland á lið í lokakeppni A-deildar í U20. Njarðvíkingarnir Kristinn Pálsson og Snjólfur Marel Stefánsson hafa verið valdir í hópinn, ásamt Grindvíkingnum Ingva Þór Guðmundssyni. U20 ára liðið situr ekki auðum höndum því í kvöld mætir það U18 ára liði Íslands í æfingaleik í Keflavík kl. 17:15. Þá liggja fyrir æfingaleikir hjá liðinu í Laugardalshöll 19.-21. júní næstkomandi gegn Svíþjóð, Finnlandi og Ísrael. Hópur Íslands sem keppir á U20 á Krít í júlímánuði Kári Jónsson – Drexler, USA Halldór Garðar Hermannson – Þór Þorlákshöfn Arnór Hermannsson – KR Kristinn Pálsson – Marist, USA Þórir Guðmundur Þorbjarnarson – KR Eyjólfur Ásberg Halldórsson – Skallagrímur Snjólfur Stefánsson – Njarðvík Snorri Vignisson – Breiðablik Ingvi Þór Guðmundsson – Grindavík Breki Gylfason – Haukar Sveinbjörn Jóhannesson – Breiðablik Tryggvi Snær Hlinason – Þór Akureyri Þjálfari: Finnur Freyr Stefánsson Aðstoðarþjálfarar: Baldur Þór Ragnarsson og Einar Árni Jóhannsson Meira frá SuðurnesjumMarkamaskína til KeflavíkurEM U20 í körfuknattleik – Suðurnesjamennirnir standa sig velHrund og Jón Axel íþróttafólk GrindavíkurU20 hópurinn hlaðinn Suðurnesjastúlkum – Enginn af Suðurnesjum í karlahópnumUngir leikmenn streyma til KeflavíkurAron til Grindavíkur og Ísak Óli framlengir við KeflavíkAdam [...]