Nýjast á Local Suðurnes

Suðurnesjaliðin í Dominos-deildinni: Tveir sigrar og eitt tap – Logi í miklu stuði

Mynd: Kkd. Njarðvíkur

Dagur Kár Jónsson var hetja Grindvíkinga þegar liðið lagði Valsmenn að velli í Grindavík í kvöld, en hann skoraði sigurkörfuna í 90-89 sigri liðsins þegar innan við sekúnda var eftir af leiknum. Valsmenn voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og leiddu að honum loknum 45-54, en Grindvíkingar söxuðu jafnt og þétt á forskotið eftir því sem leið á síðari hálfleikinn.

Rashad Whack var stigahæstur Grindvíkinga í leiknum með 21 stig og Ólafur Ólafsson kom næstur með 17.

Njarðvíkingar gerðu góða ferð á Sauðárkrók og lögðu heimamenn að velli með 100 stigum gegn 93. Logi Gunnarsson bætti upp fyrir slappan sóknarleik gegn Keflavík á dögunum og fór á kostum í liði Njarðvíkur en hann skoraði 29 stig. Terrel Vinson kom svo næstur með 22 stig.

Keflvíkingar fengu Stjörnumenn í heimsókn í TM-Höllina og voru þeir síðarnefndu sterkari nær allan leikinn og höfðu ellefu stiga sigur 81-92. Stanley Earl Robinson, nýr erlendur leikmaður Keflvíkinga hefur valdið vonbrigðum það sem af er og náði sér ekki á strik í leiknum og það sama má segja um Regie Dupree sem þó var stigahæstur Keflvíkinga með 16 stig. Ragnar Örn Bragason skoraði 13 stig og fyrrnefndur Robinson 10.