sudurnes.net
Stojkovic skaut Víði á topp þriðju deildarinnar - Local Sudurnes
Aleksandar Stojkovic sá til þess að Víðismenn sigruðu nágrannaslaginn í þriðju deildinni í knattspyrnu í kvöld, en hann skorað þrennu á tuttugu mínútna kafla í 4-1 sigri gegn Reyni. Víðismaðurinn Helgi Þór Jónsson skoraði eina mark fyrri hálfleiks eftir aðeins fimm mínútna leik. Aleksandar Stojkovic skoraði svo tvö mörk á tveimur mínútum, á 60. og 62. mínútu. Hann var svo aftur á ferðinni þegar um tíu mínútur lifðu leiks. Sandgerðingar náðu að klóra í bakkann fimm mínútum fyrir leikslok, þar var að verki Alexander Aron Hannesson. Víðismenn skelltu sér á topp deildarinnar með sigrinum, á meðan Reynismenn sitja í 5. sæti. Meira frá SuðurnesjumVíðismenn töpuðu stórt í BorgunarbikarnumÖruggur sigur kom Grindavík á topp Inkasso-deildarinnarGrindavík á toppinn í 1. deildinniFyrsta tap Njarðvíkinga – Víðir í fjórða sæti eftir sigur í markaleikNjarðvíkingar nálgast Inkasso – Hogg með tvö mörk í öruggum sigri á VestraÞróttur upp um deild eftir stórsigur á Reyni SandgerðiKeflavík í úrvalsdeildinaJafnt hjá Keflavík gegn Fylki – Rise stimplaði sig innVíðismenn nánast öruggir með sæti í 2. deildJafnt hjá Keflavík í lokaleiknum – Grindavík skoraði mest allra liða í deildarkeppni