Sterk liðsheild skóp Grindavíkursigur
Grindvíkingar eru einum sigri frá því að tryggja sér sæti í úrslitarimmu Dominos-deildarinnar í körfuknattleik, eftir 94-84 sigur á Stjörnunni í kvöld.
Það var öðru fremur sterk liðsheild sem skóp sigurinn í kvöld, Grindvíkingar náðu vel saman í vörn og sókn, á meðan Stjörnumenn virkuðu óákveðnir í flestum sínum aðgerðum.
Lewis Clinch Jr. skoraði 22 stig fyrir Grindavík, Þorleifur Ólafsson átti frábæran kafla í fyrri hálfleik og skoraði 21 stig og tók 10 fráköst. Þá átti Ólafur Ólafsson einnig fínan leik og setti 15 stig og tók 10 fráköst.