Nýjast á Local Suðurnes

Stærsti leikur í sögu Þróttar – Allir á völlinn

Þróttarar eiga stórleik fyrir höndum á miðvikudaginn kemur, þegar þeir taka á móti ÍH í hreinum úrslitaleik um það hvort liðið fer upp í 3. deild karla í knattspyrnu. Fyrri leik liðanna lauk með 2-2 jafntefli.

Eins og gefur að skilja skiptir stuðningur áhorfenda öllu máli. Leikmenn meistaraflokks Þróttar úr Vogum biðja alla Þróttara, Vogabúa og Suðurnesjamenn að mæta á miðvikudaginn (MORGUN) kl.17:00 á Vogabæjarvöll og búa til þá stemningu sem þarf til að landa sigrinum.