Nýjast á Local Suðurnes

Special Olympicsfarar fengu flottar móttökur í Leifsstöð

Starfsmenn Isavia á Keflavíkurflugvelli tóku í morgun á móti íslensku keppendunum á Alþjóðasumarleika Special Olympics sem fram fóru í Los Angeles dagana 25. júlí til 3. ágúst 2015. Alls voru 41 keppandi frá Íslandi á leikunum en samtals keppa um 7.000 manns á þessum leikum sem haldnir eru fjórða hvert ár.

Íslensku keppendurnir náðu frábærum árangri á leikunum og skiluðu meðal annars fjórum gullverðlaunum í hús. Það voru því þreyttir en sælir keppendur sem gengu inn í flugstöðina á Keflavíkurflugvelli eftir að hafa fengið heiðursvatnsboga yfir flugvélina frá slökkvibifreiðum Keflavíkurflugvallar.

Special-Olympics-heidursbogi

Heiðursvatnsboga sprautað yfir flugvélina er hún kom inn að stæði

 

Tekið var á móti þeim með lúðraþyt, blómum og hressandi veitingum eftir langt ferðalag frá Los Angeles. Hlynur Sigurðsson framkvæmdastjóri flugstöðvarinnar hélt stutta tölu og bauð keppendurna velkomna heim og óskaði þeim til hamingju með árangurinn.

Þess má geta að tveir starfsmenn Isavia á Keflavíkurflugvelli kepptu á leikunum, þau Jósef Daníelsson og Bryndís Brynjólfsdóttir og fékk Bryndís gullverðlaun í boðhlaupi á leikunum, segir í tilkynningu á heimasíðu Isavia.