sudurnes.net
Slit á samstarfi kom Njarðvíkingum á óvart - Efla tengsl annars- og meistaraflokks - Local Sudurnes
Samstarfi Njarðvíkur og Keflavíkur í öðrum flokki í knattspyrnu, sem staðið hafði í þrjú ár, var slitið einhliða af Knattspyrnudeild Keflavíkur og kom Njarðvíkingum mjög á óvart, enda hafði samstarfið gengið vel, að þeirra mati. Deildirnar sendu þrjú lið til keppni á Íslandsmótinu í sumar sem öll náðu góðum árangri, en tvö lið enduðu tímabilið sem sigurvegarar í sínum riðlum. Þá lék þriðja liðið til úrslita í bikarkeppni KSÍ, þar sem það tapaði naumlega. Sameinað lið vann Íslandsmeistaratitilinn árið 2015. Samkvæmt heimildum Suðurnes.net tóku mun færri iðkendur frá knattspyrnudeild Njarðvíkur þátt í samstarfinu, en þrátt fyrir það greiddu Njarðvíkingar helming kostnaðar við samstarfið, auk þess að leggja til helming þess tíma sem sameinað lið hafði til afnota í Reykjaneshöll. Þá herma heimildir Suðurnes.net að engin ástæða hafi verið gefin fyrir samstarfsslitunum af hálfu Keflvíkinga. Njarðvíkingar munu halda úti öðrum flokki í vetur, þrátt fyrir fáa iðkendur, en knattspyrnudeildin hyggst efla tengsl 2. flokks og meistaraflokks. Það verður meðal annars gert með þeim hætti að nýráðnir þjálfarar meistarflokks, Rafn Markús Vilbergsson og Snorri Már Jónsson munu taka að sér þjálfun flokksins samhliða þjálfun meistaraflokks. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birt er á heimasíðu félagsins. Landsliðsmarkvörðurinn Ingvar Jónsson hóf ferilinn með Njarðvíkingum Í tilkynningu Njarðvíkinga kemur einnig [...]