sudurnes.net
Slæmur dagur hjá Njarðvík og Grindavík í Dominos-deildinni - Local Sudurnes
Þrátt fyrir fína byrjun Njarðvíkinga gegn lærisveinum Einars Árna í Þór frá Þorlákshöfn verður 15 stiga sigur gestanna að teljast sanngjarn, Njarðvíkingar áttu reyndar ágætan fyrri hálfleik og leiddu með 7 stigum í leikhléi, 47-40, eftir að hafa náð 15 stiga forskoti á tímabili. Þórsarar héldu áfram að saxa á forskot Njarðvíkinga í þriðja leikhluta og leiddu að honum loknum 61-69. Njarðvíkingar hófu lokaleiklutann af krafti og náðu að minnka muninn í eitt stig þegar hann var hálfnaður. Á þessum tímapunkti meiddist Haukur Helgi, það olli því að hann spilaði ekki meira í þessum leik og við það virtist sem allur vindur væri úr Njarðvíkingum, Þórsarar gengu á lagið og höfðu að lokum sanngjarnan sigur, 75-90. Grindavík hefur tapað 5 af síðustu 6 leikjum Eftir 75-64 tap gegn Haukum í kvöld hafa Grindvíkingar tapað fimm af síðustu sex leikjum sínum, sigur Hauka var sanngjarn en bæði lið áttu dapran dag og buðu ekki upp á mikla skemmtun í kvöld. Staðan í leikhléi var 32-37 Grindvíkingum í vil, sem þó skoruðu ekki stig fyrr en á 5. mínútu leiksins. Haukar sigldu sigrinum örugglega heim í síðari hálfleik en á endanum munaði 11 stigum á liðunum. Lokatölur 75-64, Haukum í vil. Eric Wise, sem lék sinn [...]