sudurnes.net
Sindri Kristinn til reynslu hjá einu sterkasta liði Noregs - Local Sudurnes
Sindri Kristinn Ólafsson, markvörður Keflvíkinga í knattspyrnu hefur haldið til Noregs þar sem hann verður til reynslu hjá Odds BK næstu daga. Odds BK er eitt sterkasta lið Noregs um þessar mundir og er sem stendur í 4. sæti norsku deildarinnar. Sindri Kristinn sem er 18 ára gamall á þegar að baki 16 leiki með Keflavík í efstu deild, þar sem hann þótti standa sig mjög vel. Hann hefur einnig að baki leiki með U-19 ára og U-17 ára landsliðum Íslands. Meira frá SuðurnesjumKeflvíkingar einir á toppnum í Dominos-deildinniGrindvíkingar fá nýjan markvörðÞróttarar hefja knattspyrnutímabilið á laugardag – Leika í ReykjaneshöllNjarðvík mætir Grindavík í 16-liða úrslitum MaltbikarsinsNjarðvíkingar í fallsæti eftir tap gegn KFKeflavík Meistarar meistarannaSameinað lið Keflavíkur og Njarðvíkur leikur til úrslita í bikarnumArnór Ingvi mögulega á leið í Meistaradeildina – Læknisskoðun hjá AEK í dagKeflavík og Njarðvík mætast í 16 liða úrslitumBonneau og félagar unnu bronsið