sudurnes.net
Sigur hjá Njarðvík í fyrsta leik - Local Sudurnes
Njarðvíkingar unnu Hött á Egilsstöðum í fyrsta leik sínum í annari deildinni í knattspyrnu í gær. Hattarmenn settu boltann í eigið mark í uppbótartíma, eftir mikinn baráttuleik. Guðmundur Steinarsson, þjálfari Njarðvíkinga var ánægður með sigurinn: Okkar leikplan gekk virkilega vel upp í dag, það endaði með því að Hattarmenn settu boltann í eigið net eftir góða pressu frá okkur á lokasekúndum leiksins. Þannig að 3 stig og við ánægðir með okkar leik. Sagði Guðmundur á heimasíðu Njarðvíkinga. Meira frá SuðurnesjumSigrar hjá Njarðvík og Víði í 2. deildinniÞriðja deildin: Sigur hjá Þrótti – Jafnt hjá VíðiÞróttur lagði topplið KáraÖruggur sigur Njarðvíkinga á KVGrindavík og Keflavík með góða sigra í úrslitum kvennaboltansSigurbergur áfram hjá Keflavík – Stefnan sett á Pepsí-deildarsætiRafn og Árni hætta að þjálfa VíðiReynir tapaði nágrannaslagnum – Eiga þó enn möguleika á að fara uppTommy Nielsen þjálfar Víði GarðiNjarðvíkingar í viðræðum við Mikael