Nýjast á Local Suðurnes

Samúel Kári og Arnór Ingvi í landsliðshópnum – Ingvar meiddur

A landslið karla fer til Indónesíu í byrjun janúar næstkomandi og leikur þar tvo leiki við heimamenn. Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt hvaða leikmenn munu taka þátt í verkefninu, en hann fer með 23 manna hóp út.

Suðurnesjamennirnir Arnór Ingvi Traustason og Samúel Kári Friðjónsson munu væntanlega taka þátt í leikjunum tveimur, en markvörðurinn Ingvar Jónsson var ekki valinn í hópinn að þessu sinni þar sem hann á við meiðsli að stríða.

Leikirnir fara fram 11. og 14. janúar og fara fram utan við alþjóðlega landsleikjadaga FIFA.

Indónesía er sem stendur í 154. sæti heimslista FIFA og fór upp um 11. sæti í nýjustu útgáfu hans. A landslið karla og Indónesía hafa aldrei mæst áður á knattspyrnuvellinum.

MarkmennFæddurTímabilLMFélag
Frederik Schram199520171Roskilde FK
Rúnar Alex Rúnarsson199520171Nordsjælland
Anton Ari Einarsson1994Valur
Varnarmenn
Ragnar Sigurðsson19862007-2017743Rubin Kazan
Sverrir Ingi Ingason19932014-2017163FC Rostov
Jón Guðni Fjóluson19892008-201711IFK Norrköping
Haukur Heiðar Hauksson19912014-20167AIK
Hólmar Örn Eyjófsson19902012-20176Levski Sofia
Hjörtur Hermannsson19952016-20175Brøndby IF
Böðvar Böðvarsson199520173FH
Viðar Ari Jónsson199420173Brann SK
Felix Örn FriðrikssonIBV
Miðjumenn
Arnór Smárason19882008-2017232Hammarby
Arnór Ingvi Traustason19932015-2017155Malmö FF
Aron Sigurðarson19942016-201752Tromsö
Hilmar Árni Halldórsson1993Stjarnan
Mikael Neville Anderson1998Vendsyssel FF
Samúel Kári Friðjónsson1996Valerenga IF
Sóknarmenn
Björn Bergmann Sigurðarson19912011-201691Molde BK
Óttar Magnús Karlsson199720173Molde BK
Kristján Flóki Finnbogason199520172Start IF
Tryggvi Hrafn Haraldsson199620171Halmstad  BK