Nýjast á Local Suðurnes

Samningur um gerð gervigrasvallar undirritaður í blíðskapar veðri

Fulltrúar byggingarverktakans BYGG og Reykjanesbæjar nýttu sér gott veður á dögunum til undirritunar samnings um  gerð gervigrasvallar við Reykjaneshöll.

Fulltrúar yngstu iðkenda knattspyrnudeilda Keflavíkur og Njarðvíkur voru viðstaddir undirritunina, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Framkvæmdir við völlinn munu hefjast á allra næstu dögum.

Tilboð fyrirtækisins hljóðaði upp á 79% af kostnaðaráætlun eða tæplega 142 milljónir króna. Hæsta boð í verkið hljóðaði upp á um 207 milljónir króna.

ö