sudurnes.net
Samningalota hjá Keflvíkingum - Samið við níu leikmenn og tvo þjálfara - Local Sudurnes
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur gekk á dögunum frá samningum við sex unga og mjög efnilega leikmenn kvennaliðsins. Þær Írena Sól Jónsdóttir, Katla Rún Garðarsdóttir, Emelía Ósk Gunnarsdóttir, Thelma Dís Ágústsdóttir, Þóranna Kika Hodge Carr og Andrea Dögg Einarsdóttir léku allar með meistaraflokki á liðnu tímabili og eru uppaldar hjá félaginu. Einnig var gengið frá samningum við þjálfara kvennaliðsins, þá Sverri Þór Sverrisson og Gunnar Stefánsson. Samið var til tveggja ára. Um er að ræða stelpur sem hafa alist upp hjá Keflavík og sigrað allt sem hægt er að sigra í sínum yngri flokkum. Mikil ábyrgð og mikið traust hefur verið lagt á þessar ungu stelpur en í vetur tefldi Keflavík fram yngsta liðinu í Dominosdeild kvenna og stóðu stelpurnar sig með príði, þar sem þær enduðu hársbreidd frá úrslitakeppninni. Framtíðin er björt hjá kvennastarfi Keflavíkur og ekki mun líða að löngu þar til við munum sjá þessar ungu stelpur lyfta sínum fyrsta titli fyrir meistaraflokk félagsins. Segir í tilkynningu frá Keflavík Einnig var gengið frá samningum karlamegin við þá Davíð Pál Hermannsson, Daða Lár Jónsson og Arnór Inga Ingvason. Allir léku þeir með Keflavík í vetur, þrátt fyrir að eiga sér mismunandi bakgrunna. Davíð Páll hefur nú leikið með liðinu í tvö tímabil og er [...]