Nýjast á Local Suðurnes

Sameiginlegt lið Keflavíkur og Njarðvíkur Faxaflóameistarar

Sameiginlegt lið Keflavíkur og Njarðvíkur í 2. flokki karla varð á dögunum Faxaflóameistarar í fótbolta.  Liðið tapaði aðeins einum leik í mótinu og sigraði bæði hjá A- og B-liðum.  Margir af þessum drengjum hafa verið að æfa með meistaraflokkum félaganna og nokkrir hafa þegar spilað sína fyrstu meistaraflokksleiki.  Þjálfarar liðsins eru þeir Unnar Stefán Sigurðsson og Ingi Þór Þórisson.

Ef smellt er á tenglana hér fyrir neðan má sjá öll úrslitin í leikjunum og lokastöðuna í riðlunum.

Faxaflóamót – A-lið
Faxaflóamót – B-lið