Rekinn daginn eftir að hann meiddist – “Allt fór til fjandans og það hratt.”
Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Terell Vinson segir farir sínar ekki sléttar eftir stutta dvöl í Grindavík, en leikmaðurinn náði aðeins tveimur leikjum með félaginu áður en hann meiddist illa í leik gegn Skallagrími í upphafi tímabils.
Vinson segir í ítarlegu viðtali við mbl.is að viðbrögðin frá körfuknattleiksdeild Grindavíkur í kjölfar meiðslanna hafi vægast sagt verið hörmuleg. Vinson var rekinn frá Grindavík 12. október, daginn eftir leikinn við Skallagrím. Síðan þá hefur félagið ekkert viljað gera fyrir hann.
„Þetta var ekki það slæmt til að byrja með hjá Grindavík. Ég var spenntur að fá að spila með liðinu og þjálfa yngri flokkana. Stuðningsmennirnir tóku vel á móti mér og stjórnin virtist spennt að fá mig og mér leið vel. Ákveðnir hlutir voru hins vegar ekki alveg eins og þeir áttu að vera.” Segir Vinson meðal annars í viðtalinu og á þar við hluti utan vallar, eins og bíla- og íbúðamál.
Vinson segir vandræði sín hafa byrjað strax daginn eftir að hann meiddist og að allt hafi farið “…til fjandans og það hratt.”
„Það var eins og ég færi úr því að vera manneskja í þeirra augum og í eitthvert rusl sem mátti brenna og losa sig við. Ég meiddist 11. október og daginn eftir mætti formaðurinn heim til mín og rak mig á staðnum. Það var mikil óvissa sem fylgdi. Ég hafði ekki hugmynd um hvort félagið myndi standa með mér í gegnum meiðslin og hjálpa mér að fá meðferð við þeim.” Segir Vinson.
Þá segist Vinson einungis hafa fengið einn mánuð greiddan í laun eftir að meiðslin komu upp og að Grindavík hafi lítið komið að kostnaði vegna meðferðar vegna meiðslanna.
Viðtalið í heild má sjá á vef mbl.is.