sudurnes.net
Ragnheiður Sara tryggði sér keppnisrétt á Heimsleikunum í crossfit - Local Sudurnes
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir tryggði sér sæti á Heimsleikunum í crossfit, sem fram fara í Los Angeles síðar á árinu, með sigri í undankeppni fyrir leikana sem fram fór í Madríd á Spáni um helgina. Ragnheiður Sara endaði í þriðja sæti í báðum greinum dagsins, en það kom ekki að sök og dugði til sigurs á mótinu. Íslendingar voru áberandi í stúkunni Íslendingar voru áberandi á mótinu um helgina, en þrjár Íslenskar stúlkur enduðu mótið í fimm efstu sætunum auk þess sem stuðningsmenn íslensku keppendanna létu vel í sér heyra í stúkunni. Crossfit drottningin úr Njarðvík sagðist í viðtali við sjónvarpsstöð leikanna vera klár í slaginn fyrir Heimsleikana enda hafi hún lært mikið á síðustu keppni, þar sem hún endaði í þriðja sæti eftir að hafa verið í forystu nær allan tímann. Meira frá SuðurnesjumHeimsleikarnir: Styttist í einstaklingskeppnina – Leynd hvílir yfir fyrstu greinunumRagnheiður Sara keppir um sæti á Heimsleikunum um helgina – Fylgstu með í beinni!Ragnheiður Sara fékk bronsið í DúbaíSara fer vel af stað á Wodapalooza15 ára Keflvíkurmær markahæst á FaxaflóamótinuSara fékk rúmar átta milljónir króna í verðlaunRagnheiður Sara: “Gerði fullt af litlum mistökum á síðustu heimsleikum”Ragnheiður Sara og Katrín Davíðsdóttir takast á í undankeppni Heimsleikanna í crossfitSpennan í hámarki [...]