sudurnes.net
Ragnheiður Sara tekur þátt í liðakeppni CrossFit Games - Local Sudurnes
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir tekur um þessar mundir þátt í liðakeppni CrossFit Games, en liðsfélagi hennar í keppninni er ein af bestu crossfitkonum heims, Sam Briggs. Liðakeppnin fer þannig fram að keppendur framkvæma átta æfingar í sitthvoru lagi á sínum heimavelli yfir tveggja vikna tímabil að viðstöddum dómara, sem skilar niðurstöðunum inn til keppnishaldara. Ragnheiður Sara og Briggs eru sem stendur í öðru sæti í keppninni, en aðal keppinautar þeirra eru þær Annie Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir, sem verma fyrsta sætið þegar keppnin er hálfnuð. Líkt og í öðrum keppnum á vegurm CrossFit Games eru peningaverðlaun í boði fyrir efstu sætin og fá sigurvegarar keppninnar rúmlega eina milljón króna í sinn hlut og annað sætið gefur um 600.000 krónur. Meira frá SuðurnesjumRagnheiður Sara fagnaði sigri á The Granite Games á afmælisdaginnRagnheiður Sara sigraði í Dubai – Fær rúmar sex milljónir króna í verðlaunRagnheiður Sara sigraði á sterku móti í BostonRagnheiður Sara hefur þénað milljónir á crossfitkeppnumHvernig svindlar Sara á mataræðinu? – Myndband!Til mikils að vinna á Heimsleikunum í crossfitEinvígi Ragnheiðar Söru og Katrínar Tönju annað kvöld – Myndband!Ragnheiður Sara í áttunda sæti eftir fyrstu grein – Efst af Íslensku keppendunumHeimsleikarnir: Sara skaust upp í fjórða sætiRagnheiður Sara heldur efsta [...]