Ragnheiður Sara talin best af nýliðunum á heimsleikunum í crossfit
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir er af fjölmiðlum vestanhafs talin vera einn af bestu af nýliðunum sem taka þátt í heimsleikunum í crossfit sem hefjast þann 22. júlí í Carson, Kalifoníu Það eru 29 nýliðar skráðir til leiks á leikana í ár og er sá hópur talinn mun sterkari en þeir nýliðar sem tóku þátt á síðustu heimsleikum.
Árangur Ragnheiðar Söru sem nú er stödd í Kaliforníu þar sem lokaundirbúningurinn fyrir heimsleikana fer fram verður að tejast ótrúlega góður en hún hefur sigrað hvert mótið á fætur öðru að undanförnu, meðal annars Evrópumótið sem fram fór í júní.
Fyrir þá sem ætla sér að fylgjast með heimsleikunum þá eru keppnistímarnir hér fyrir neðan:
22. júlí 18:00 – 22:00
24. júlí 18:00 – 05:30
25. júlí 18;00 – 05:30
26. júlí 18:00 – 03:00