Ragnheiður Sara í fjórða sæti – Fær um fimm milljónir króna í verðlaun
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir endaði í fjórða sæti á Heimsleikunum í crossfit, sem fram fóru í Wisconsin í Bandaríkjunum um helgina. Ragnheiður Sara hafði tvö árin þar á undan lent í þriðja sæti.
Keppnin var með örlítið breyttu sniði í ár, en alls var keppt í 13 greinum á fjórum dögum í einstaklingskeppni kvenna en í fyrra voru greinarnar 15 á fimm dögum.
Ragnheiður Sara fær um 4,8 milljónir íslenskra króna fyrir fjórða sætið auk aukaverðluna fyrir sæti í einstökum greinum, en hún sigraði eina grein og lenti í þriðja sæti í þremur.