sudurnes.net
Ragnheiður Sara: "Gerði fullt af litlum mistökum á síðustu heimsleikum" - Local Sudurnes
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir munu mætast í einvígi á vegum Crossfit Games í Colorado Springs, í Bandaríkjunum í kvöld. Einvígið hefst um klukkan 12 á miðnætti og verður sýnt í beinni útsendingu á vef keppninnar. Ragnheiður Sara var í stórskemmtilegu viðtali við Pat Sherwood um einvígið sem fram fer í kvöld og heimsleikana sem hún tók þátt í á síðasta ári, en í viðtalinu sem sjá má hér fyrir neðan, kemur meðal annars fram að hún hafi gert mikið af “litlum” mistökum og komi til með að koma mun betur undirbúin til leiks á næstu heimsleika – Þá mun hún skilja stressið eftir heima. Meira frá SuðurnesjumEinvígi Ragnheiðar Söru og Katrínar Tönju annað kvöld – Myndband!Hraustustu konur heims keppa – Ragnheiður Sara og Katrín Tanja mætast í marsRagnheiður Sara þriðja í Miami – Myndband!Ragnheiður Sara fagnaði sigri á The Granite Games á afmælisdaginnRagnheiður Sara tekur þátt í liðakeppni CrossFit GamesRagnheiður Sara hefur þénað milljónir á crossfitkeppnumSara náði ekki að tryggja sig á heimsleikanaSara sjötta eftir fyrsta daginnRagnheiður Sara tryggði sér keppnisrétt á Heimsleikunum í crossfitRagnheiður Sara og Esslinger enduðu í öðru sæti í Sviss