Ragnheiður Sara fagnaði sigri á The Granite Games á afmælisdaginn
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir heldur áfram að gera það gott í Crossfit heiminum en hún keppti um helgina á “The Granite Games 2015”, en mótið var haldið í Minnesota í Bandaríkjunum. Ragnheiður Sara sem fagnaði 23ja ára afmæli sínu í gær gerði sér lítið fyrir og sigraði mótið og nældi sér í rétt rúmlega þriggja milljóna króna verðlaunafé.
Fyrir mótið höfðu fjölmiðlar vestanhafs spáð Ragnheiði Söru öðru sætinu en aðal keppinautur hennar í þessu móti var Crossfit-goðsögnin Sam Briggs sem spáð var sigri.
Hér fyrir neðan má sjá viðtal sem tekið var við Ragnheiði Söru eftir fyrstu grein leikanna.