Rafael til Njarðvíkur - Local Sudurnes
Portúgalski framherjinn Rafael Victor hefur skrifað undir samning við Knattspyrnudeild Njarðvíkur um að leika með liðinu í sumar í Lengjudeildinni. Rafael sem er 26 ára gamall lék með Hetti/Huginn í 2.deildinni í fyrra og hafði áður leikið með Þrótti Reykjavík í Lengjudeildinni tímabilið 2019/2020. Framherjinn stóri og stæðilegi hefur alls leikið 43 leiki í keppnum á vegum KSÍ og skorað í þeim 25 mörk. Rafael er nú að spila með Sertanense í heimalandi sínu, en er væntanlega í framhaldinu til Njarðvíkur í byrjun næsta mánaðar. Auk Íslands og Portúgals hefur Rafael leikið í Ísrael og Póllandi. Meira frá SuðurnesjumBirkir Freyr aftur í ReyniNjarðvík sektað vegna ummæla þjálfaraÁ fimmta tug krakka taka þátt í hæfileikamótun KSÍ á SuðurnesjumHeimsóttu Ragnar Örn og veittu honum Gull-heiðursmerki KeflavíkurMinnisvarði um Hafstein Guðmundsson afhjúpaðurÖruggur Njarðvíkursigur í grannaslagÞorvaldur hættur hjá KeflavíkÖll Suðurnesjaliðin fá heimaleiki í 32 liða úrslitum BorgunarbikarsinsGrindavík semur við erlendan leikmannSkoraði þrennu á sjö mínútum