sudurnes.net
Óvæntur sigur hjá Þrótti á Vængjum Júpiters - Local Sudurnes
Þróttarar úr Vogum unnu óvæntan og mikilvægan sigur á Vængjum Júpiters í þriðju deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi, en Vængirnir eru í efri hluta deildarinnar en Þróttarar í þeim neðri. Það voru Vængirnir sem byrjuðu betur í Grafarvogi og komust yfir eftir um 20. mínútna leik, Vogamenn náðu að jafna rétt fyrir leikhlé, með marki Arnars Þórs Tómassonar. Kristinn Aron Hjartarsons skoraði svo sigurmark Þróttar á 63. mínútu. Næasti leikur liðsins er næstkomandi föstudagskvöld, en þá fær liðið nágranna sína, Reyni Sandgerði í heimsókn. Þróttarar eru í 7. sæti deildarinnar með 10 stig eftir átta leiki og fögnuðu vel eftir leikinn í gær, eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi. Meira frá SuðurnesjumNjarðvíkingar eiga mikilvægan leik gegn Sindra á sunnudagDominos-deildin: Njarðvík og Grindavík töpuðuÞróttur V. tapaði á DalvíkSterk liðsheild skóp GrindavíkursigurGrindavík í Pepsí-deildina – Sjálfsmark á lokamínútum varð Keflavík að falliDramatík þegar Grindavík vann Þór á AkureyriSuðurnesjamenn með fjölda verðlauna á Redneck-mótinu í Rallycrossi – Myndband!Keflvíkingar unnu verðskuldaðan sigur í LjónagryfjunniGrindavík vann grannaslaginn – Keflavík tapaði í BorgarnesiGrindvíkingar lágu gegn vel stemmdum KR-ingum