Nýjast á Local Suðurnes

Opna Grindavíkurmótið í pílukasti á laugardag

Opna Grindavíkurmótið í pílukasti verður haldið laugardaginn 9. janúar í Gjánni, Austurvegi 1-3. Keppt verður í sameiginlegum flokki karla og kvenna í riðlakeppni. Markmiðið er að allir keppendur komist upp úr riðlum og fari áfram í úrslit. Veitingar verða í boði á staðnum og er matur innifalinn í gjaldi mótsins.

Fyrirkomulag riðlakeppninnar virkar þannig að þeir sem lenda í efri hluta síns riðils fara í A úrslit. Þeir sem lenda í neðri hluta í sínum riðli mætast síðan í B úrslitum. Úrslit ráðast með beinum útslætti í báðum flokkum, A og B.

Nánari upplýsingar um fyrirkomulag, þátttökugjald og skráningu er að finna á heimasíðu Grindavíkurbæjar.