Nýjast á Local Suðurnes

Ómar Jóhannsson þjálfar markverði hjá Keflavík

Ómar Jóhannsson

Ómar Jóhannsson hefur verið ráðinn markmannsþjálfari Keflavíkur í knattspyrnu. Ómar hefur verið aðstoðarþjálfari og leikmaður hjá Njarðvík undanfarin ár en kom inn sem markmannsþjálfari í lok síðasta tímabils hjá Keflavík.

Ómar er reyndur markvörður og hefur leikið 185 leiki með Keflavík í meistaraflokki, 9 leiki með U17, 6 leiki með U19 og 19 með U21 landsliðum Íslands.

Í tilkynningu frá Knattspyrnudeild Keflavíkur segir meðal annars:

Það er mikið fagnaðarefni að fá Ómar í þjálfarateymi Keflavíkur í það mikla starf sem er framundan við að byggja liðið upp og koma því í deild þeirra bestu og gaman frá því að segja að hann kirjaði “Ég er kominn heim”  þegar að hann skrifaði undir.