sudurnes.net
Ómar bestur hjá Njarðvík og Theodór Guðni markahæstur - Local Sudurnes
Ómar Jóhannsson var kjörinn leikmaður ársins á lokahófi meistaraflokks Njarðvíkur sem haldið var á laugardaginn. Þá var Ari Már Andrésson valinn efnilegasti leikmaðurinn og handhafi Milebikarsins sem er gefin af Ungmark. Það var Guðmundur Sighvatsson stjórnarmaður í Ungmark sem afhenti hann. Markahæsti leikmaðurinn var Theodór Guðni Halldórsson en hann gerði samtals 16 mörk í Borgunarbikarnum, Íslandsmótinu og Lengjubikarnum. Fjórir leikmenn fengu viðurkenningu fyrir 50 leiki í meistaraflokki þeir Aron Elís Árnason, Ari Már Andrésson, Arnór Svansson og Brynjar Freyr Garðarson. Haraldur Helgason formaður deildarinnar afhenti viðurkenningarnar. Meira frá SuðurnesjumNjarðvíkursigur á SauðárkrókiNjarðvík enn á toppnum – Þróttur klifrar upp töflunaGuðmundur og Ómar áfram með NjarðvíkHnífjafnt í “Lemon Classico” – Haukur Helgi og Maggi Gunn átu á sig gatYfir þúsund krakkar mæta á Nettómótið um helginaSuðurnesjamennirnir byrja á bekknum gegn PortúgalJafnt hjá Njarðvík á Húsavík – Veittu Keflvíkingum stuðning gegn KA í leiðinniKeflavík/Njarðvík leika til úrslita á Íslandsmótinu í 2. flokkiMár stóð sig vel á EM50 – Setti Íslandsmet í flugsundi50 marka maður til Njarðvíkur