sudurnes.net
Óli Stefán og Janko áfram með Grindavík - Local Sudurnes
Óli Stefán Flóventsson og Milan Stefán Jankovic munu halda áfram sem þjálfarar Grindavíkur í knattspyrnu, en liðið vann sér sem kunnugt er sæti í Pesí-deildinni að ári. Þeir félagar stýrðu liðinu upp úr Inkasso-deildinni í sumar og var eftir því tekið hvað liðið spilaði skemmtilegan bolta en Grindavík skoraði liða mest í deildinni í sumar, 50 mörk í 22 leikjum. Þeir Óli og Janko hafa unnið mjög gott starf með liðið og því miklar gleðifréttir að þeir muni verða áfram við stjórnvölin, segir í tilkynningu Knattspyrnudeildar Grindavíkur. Óli er aðallþjálfari liðsins en hann tók við starfinu af Tommy Nielsen síðastliðinn vetur eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari hans sumarið árið. Janko, sem er aðstoðarþjálfari, er öllum hnútum kunnugur í Grindavík en hann hefur verið meira og minna starfandi við grindvíska knattspyrnu síðan árið 1992. Meira frá SuðurnesjumÓli Stefán og Milan Stefán taka við GrindavíkJankó afþakkar laun hjá GrindavíkVíðismenn sækja leikmenn frá Serbíu og GrindavíkVíðir á toppi þriðju deildar eftir stórsigur – Reynir og Þróttur töpuðuTommy Nielsen þjálfar Víði GarðiSuðurnesjaliðin hefja leik í kvöld – Spáð misjöfnu gengi í Inkasso-deildinniVíðismenn sigruðu og Reynismenn gerðu jafntefliVíðismenn nánast öruggir með sæti í 2. deildBryngeir þjálfar Víðismenn í fótboltanumNjarðvík á toppinn eftir sigur í markaleik [...]