Oddur yfirgefur Njarðvíkinga
Bakvörðurinn Oddur Rúnar Kristjánsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við körfuknattleiksdeild Vals. Oddur hefur undanfarin tímabil leikið með Njarðvíkingum í Dominos-deildinni.
Oddur er annar leikmaðurinn sem heldur á Hlíðarenda úr Ljónagryfjunni í sumar en Ragnar Nathanealsson samdi við liðið fyrir nokkrum vikum.