sudurnes.net
Njarðvíkingur í lokakeppni Gullbikarsins - Local Sudurnes
Dani Cadena, leikmaðir Njarðvíkur í knattspyrnu, komst ásamt félögum sínum í landsliði Níkaragva áfram í lokakeppni Gullbikarsins (Gold Cup) sem haldin verður í Bandaríkjunum í júlí. Liðið vann í fyrrinótt 3-0 sigur á Haítí, og einvígið samtals 4-3. Dani lék allar 180 mínútunar í einvíginu. Dani sem uppalinn er í Real Betis er ný orðinn þrítugur og er frá Spáni en er með tvöfalt ríkisfang; spænskt og Níkaragva þar sem hann er landsliðsmaður. Dani á að baki 16 landsleiki með Níkaragva og hefur skorað í þeim 3 mörk. Dani gekk til liðs við Njarðvík, sem spilar í 2. deildinni, í febrúar þar sem hann hefur skorað eitt mark í tveimur leikjum í Lengjubikarnum. Á vef Fótbolta.net má sjá nánari umfjöllun um Gullbikarinn og landslið Níkaragva. Meira frá SuðurnesjumNjarðvíkingar semja við landsliðsmann í knattspyrnuGríðarlega mikilvægur sigur hjá NjarðvíkSigrar hjá Njarðvík og Víði í 2. deildinniElías Már í byrjunarliðinu gegn KínaMargrét skoraði 8 mörk fyrir Grindavík – Einu marki frá meti Olgu FærstehElvar Már yfirgefur Njarðvíkinga sem fá reynslubolta í staðinnNjarðvíkingar semja við öflugan framherjaLandsleikur í blaki í ReykjanesbæMikilvægur sigur hjá NjarðvíkingumSjálfsmark tryggði Keflavík jafntefli