sudurnes.net
Njarðvíkingar steinlágu í fyrsta leik Hauks Helga - Local Sudurnes
KR vann stór­sig­ur á Njarðvíkingum þegar liðin mættust í Frostaskjóli í gær, 105-76. Leikurinn var fyrsti leikur Hauks Helga Páls­son­ar með Njarðvíkingum, en KR-ingar léku án landsliðsmann­anna Helga Más Magnús­son­ar og Pavels Ermol­in­skij sem eru meidd­ir. Það var ein­ung­is í fyrsta leik­hluta sem jafn­ræði var með liðunum en eft­ir það stungu KR-ing­ar af, að lokn­um fyrri hálfleik var staðan orðin 58:41. Fljót­lega í þriðja leik­hluta var ljóst hvert stefndi en staðan eftir hann var orðin 88-61. Leiknum lauk síðan með sigri KR-inga 105-76. Marquise Simmons skoraði 24 stig og tók ​9 frá­köst, Ólaf­ur Helgi Jóns­son skoraði 14 og Hauk­ur Helgi Páls­son skoraði 13 stig, tók ​13 frá­köst og átti ​6 stoðsend­ing­ar í sínum fyrsta leik. Meira frá SuðurnesjumMichael Craig til liðs við NjarðvíkFyrsti leikur Hauks Helga með Njarðvík í kvöldValur Orri hafði betur í Suðurnesjaslagnum – Elvar Már með enn eitt metiðOpna Grindavíkurmótið í pílukasti á laugardagHeppnissigur hjá Njarðvík gegn nýliðum ValsFjögur staðfest smit á SuðurnesjumGrindavíkurstúlkur í góðri stöðu eftir sigur á HaukumJón Axel valinn í úrvalslið Evrópumóts U20Keflavíkurhraðlestin óstöðvandi í Dominos-deildinniSuðurnesjaliðin áfram í 16 liða úrslit Powerade-bikarsins