sudurnes.net
Njarðvíkingar semja við öflugan framherja - Local Sudurnes
Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur samið við bandaríska leikmanninn Terrell Vinson um að leika með liðinu á komandi vertíð í Domino´s-deild karla. Vinson er 27 ára gamall framherji sem útskrifaðist 2013 frá Massachusetts-háskóla en hefur komið við í LEB Gold deildinni á Spáni, í Rúmeníu og nú síðast lék hann með Pyrinto Tampere í Finnlandi. Vinson er hreyfanlegur framherji sem á sínum tíma setti met í Massachusetts-háskóla fyrir flesta byrjunarliðsleiki eða 128 talsins. Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari Njarðvíkur sagði Vinson myndi skila leikstöðum 3 og 4 fyrir Njarðvíkurliðið á komandi vetri. „Það verður gott að hafa hreyfanlegan mann í kringum Ragnar í teignum og við væntum mikils af Vinson þar sem hann hefur þegar fengið dágóða reynslu úr heimi atvinnumennskunnar.“ Meira frá SuðurnesjumKeflavíkursigur í grannaslagSuðurnesjaliðin í Dominos-deildinni: Tveir sigrar og eitt tap – Logi í miklu stuðiNjarðvíkingar lögðu Grindvíkinga í GryfjunniNjarðvík áfram í Maltbikarnum eftir sigur á GrindavíkElvar Már yfirgefur Njarðvíkinga sem fá reynslubolta í staðinnEllefu af Suðurnesjum berjast um landsliðssætiNjarðvíkingur í lokakeppni GullbikarsinsNjarðvíkingar semja við landsliðsmann í knattspyrnuEnn bætist í hópinn hjá KeflavíkNjarðvíkingar fagna 10 ára afmæli Ungmarks – Landsliðsmenn litu í heimsókn