Njarðvíkingar í góðri stöðu eftir sigur í Garðabæ
Sterk liðsheild Njarðvíkinga með þá Odd Helga Kristjánsson og Hauk Helga Pálsson í broddi fylkingar skóp afar mikilvægan 68-73 sigur gegn Stjörnunni í þriðja leik liðanna í 8 liða úrslitum Dominos-deildarinnar í körfuknattleik í kvöld.
Það var ljóst strax í upphafi að Njarðvíkingar ætluðu að selja sig dýrt í kvöld, vonbrigði með meiðsli Stefan Bonneau virtust þjappa liðinu saman og liðsheildin virtist sterk og leikgleðin til staðar. Umdeildur dómur sem tryggði Njarðvíkingum fimm stiga sókn og góður kafli undir lok fyrri hálfleiks tryggði Njarðvíkingum 12 stiga forystu í hálfleik, 36-48. Stjörnumenn voru ekki par sáttir við atvikið umdeilda, en dæmd var villa á Stjörnumenn fjarri boltanum á sama tíma og Maciej Baginski skoraði þriggja stiga körfu, Njarðvíkingar fengu körfuna dæmda gilda og vítaskot að auki.
Stjörnumenn söxuðu á forskotið hægt og bítandi í síðari hálfleik og komust yfir þegar tæpar tvær mínútur voru til leiksloka, Njarðvíkingar náðu hinsvegar þriggja stiga forskoti þegar um 20 sekúndur voru eftir, Stjarnan klikkaði í sókninni þar á eftir og Njarðvíkingar kláruðu leikinn á vítalínunni, 68-73 og eru þar með yfir 2-1 í einvíginu um sætið í undanúrslitunum.
Liðsheildin var sterk hjá Njarðvíkingum í kvöld, Oddur Rúnar Kristjánsson skoraði 16 stig, Haukur Helgi Pálsson skoraði 15 eins og Jeremy Martez Atkinson sem tók auk þess 10 fráköst, Ólafur Helgi Jónsson skoraði 11 stig og voru tvö af þeim afar mikilvæg undir lok leiksins.