sudurnes.net
Njarðvíkingar glíma við efsta lið Pepsi Maxdeildarinnar í bikarnum í kvöld - Local Sudurnes
Njarðvíkingar leika gegn KR-ingum í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld, en þetta er í fyrsta skipti sem Njarðvíkurliðið kemst þetta langt í keppninni. KR er um þessar mundir í efsta sæti Pepsi Max deildarinnar á meðan Njarðvíkingar verma fallsæti í Inkasso-deildinni. Liðin hafa einu sinni áður mæst í bikarnum og hafði KR þá nauman sigur, 0-1, á heimavelli Njarðvíkur. Njarðvíkingar vonast eftir að sjá sem flesta stuðningsmenn á Meistaravöllum, heimavelli KR í kvöld og hvetji sitt lið áfram og benda á í tilkynningu að ókeypis mjólk og súkkulaðikaka sé í boði fyrir þá sem leggi leið sína á völlinn. Leikurinn er einnig sýndur beint á Stöð 2 Sport. Meira frá SuðurnesjumKeflvíkingar taka á móti Stjörnunni í kvöldDómaramistök á lokasekúndum seinni framlengingar – Sjáðu atvikið!Keflavíkurstúlkur með sigur í fyrsta mótsleik ársinsElías Már í byrjunarliðinu gegn KínaMinnisvarði um Hafstein Guðmundsson afhjúpaðurYngri flokkalið Njarðvíkinga kláruðu vetrarvertíðina með stælKeflavík – Stjarnan: Breyttur leiktímiKeflvíkingar fá öflugan liðsstyrkLeikir Keflavíkur og Grindavíkur fara framSameinað lið Keflavíkur og Njarðvíkur leikur til úrslita í bikarnum