Njarðvíkingar bæta við sig mannskap í fótboltanum
Marián Polák er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við knattspyrnulið Njarðvíkur á þessu ári. Marián er fæddur 1983 og kemur frá Slóvakíu en hann er búsettur í Reykjanesbæ og hefur æft með liðinu frá því í nóvember síðastliðnum.
Marián fær væntanlega að spreyta sig þegar Njarðvíkingar taka á móti Fylkismönnum í æfingaleik í Reykjaneshöllinni klukkan 18:15 á fimmtudagskvöld.