sudurnes.net
Njarðvíkingar afla gagna vegna stöðu Bonneau - Local Sudurnes
Umræða hefur skapast í kringum þau meiðsl sem Stefan Bonneau hlaut nú á dögunum og þá helst finnst fólki á samfélagsmiðlum ansi tilviljanakennt að kappinn hafi slitið hásin nánast sama dag og samningur hans tók gildi, þetta kemur fram á vef Karfan.is. Stefan hafði þá ekki mætt á æfingu hjá liðinu þrátt fyrir að hafa verið komin til landsins snemma í September en samningurinn tók gildi þann 15. Samkvæmt heimildum Karfan.is þá vildi Stefan vissulega mæta á æfingar en umboðsmaður hafði bannað honum að gera það þangað til samningurinn tæki gildi. Umræðan varð svo háværari þegar frétt þess efnis kom uppá yfirborðið að Stefan hafði síðan í ágúst spilað í Pro Am deild heima fyrir í Bandaríkjunum þar sem sagt var að hann hafi ekki getað spilað tvo leiki þar sem hann hafi meiðst á ökkla og verið borin af velli. Þegar Karfan.is hafði samband við stjórnarmenn UMFN þá fengust þau svör að unnið væri í að skoða alla þætti málsins og verið væri að koma saman gögnum beggja vegna Atlantshafsins en vildu ekki tjá sig neitt frekar fyrr þeirri vinnu væri lokið. Meira frá SuðurnesjumBonneau mögulega áfram hjá Njarðvíkingum þrátt fyrir meiðsliNjarðvíkingar bera ekki fjárhagslegan skaða af meiðslum BonneauBonneau klár í danska boltann – Fær leikheimild [...]