sudurnes.net
Njarðvík og Keflavík áfram í Powerade-bikarnum - Local Sudurnes
Njarðvíkingar fóru létt með Hamarsmenn í viðrueign liðanna í 16 liða úrslitum Powerade-bikarsins í körfuknattleik í kvöld, lokatölurnar 69-99 fyrir Njarðvíkinga í leik þar sem allir leikmenn liðsins komust á blað. Marquise Simmons og Hjalti Friðriksson voru stigahæstir í liði Njarðvíkinga með 15 stig hvor. Það var heldur ekki mikil spenna í TM-Höllinni í kvöld þegar Keflvíkingar fengu Valsmenn í heimsókn, nema þá einna helst í fyrsta leikluta sem Keflvíkingar unnu með þriggja stiga mun, 27-24. Eftir það stungu heimann af og sigruðu leikinn með 97 stigum gegn 70. James Earl Jr. var stigahæstur Keflvíkinga í leiknum með 28 stig og Magnús Már Traustason gerði 15. Það er því ljóst að helmingur liðanna í 8 liða úrslitunum kemur af Suðurnesjum en áður höfðu B-lið Njarðvíkur og Grindavík tryggt sig áfram. Meira frá SuðurnesjumSuðurnesjaliðin áfram í 16 liða úrslit Powerade-bikarsinsKeflvíkingar endurnýja ekki samning við HillKeflavík og Grindavík töpuðuKeflvíkingar taka á móti Snæfelli í kvöld – Leik UMFN og Tindastóls frestaðDramatískur Keflavíkursigur í háspennuleikEarl Brown Jr. rekinn frá Keflavík – Fyrrum leikmaður Tindastóls kemur í hans staðKanalaus nágrannaslagur í Ljónagryfjunni í kvöldElías Már tók þátt í æfingaleik gegn stjörnuprýddu liði Real MadridAtli Már: “Flugfélag fólksins og stoltur styrktaraðili landsliðsins sjá eitt stórt [...]