sudurnes.net
Njarðvík og Grindavík með sigra í Dominos-deildinni - Local Sudurnes
Njarðvíkingar lögðu Snæfell að velli í Dominos-deildinni í Körfuknattleik og Grindvíkingar báru naumlega sigurorð af Hetti í kvöld. Njarðvíkingar skutust með sigrinum upp að hlið Stjörnunnar í þriðja sæti deildarinnar með 16 stig. Snæfellingar byrjuðu betur gegn Njarðvíkingum í kvöld og höfðu þriggja stiga forystu eftir fyrsta leikhluta. Annar leikhluti var skárri hjá Njarðvíkingum sem leiddu í leikhléi með fimm stigum, 48-43. Fínn leikur Njarðvíkinga í þriðja leikhluta með þá Hauk Helga og Bag­inski í fararbroddi fór langt með að tryggja Njarðvíkingum þægilegan sigur á heimavelli, staðan að loknum þriðja leikhluta var 67-53. Loktölur leiksins urðu svo 93-76. Bag­inski var stigahæstur Njarðvíkinga í kvöld, skoraði 24 stig, Hauk­ur Helgi Páls­son 18 og tók 7 frá­köst og Logi Gunn­ars­son skoraði 11 stig. Framlengt hjá Grindavík og Hetti Grindavíkurliðið ferðaðist á Egilsstaði í kvöld og lék gegn heimamönnum í Hetti. Leikurinn var Grindvíkingum erfiður og greinilegt að Hattarmenn hafi öðlast aukið sjálfstraust með sigrinum á Njarðvík á dögunum. Grindvíkingar voru undir nær allan leikinn og mest náði Höttur 14 stiga forystu í fyrrihálfleik. Grindvíkingar náðu þó að minnka muninn fyrir leikhlé en fyrri hálfleik lauk í stöðunni 39-36. Höttur hélt frumkvæðinu í þriðja leikhluta og leiddu með 6 stigum að honum loknum, 56-50. Grindvíkingar náðu að halda [...]