Njarðvík mætir KR og Grindavík FH
Dregið var til átta liða úrslitanna í bikarkeppni KSÍ, Mjólkurbikarnum, í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli í dag.
Njarðvík, sem sló granna sína úr Keflavík út í 16 liða úrslitum fær verðuga andstæðinga í átta liða úrslitum en þeir grænklæddu munu mæta KR á útivelli.
Grindvíkingar fá sömuleiðis verðuga andstæðinga en þeir munu leika gegn FH, einnig á útivelli.
8-liða úrslit:
Breiðablik – Fylkir
KR – Njarðvík
ÍBV – Víkingur R.
FH – Grindavík