Nýjast á Local Suðurnes

Njarðvík hélt toppsætinu – Víðir í sjöunda eftir tap á Grenivík

Mynd: Knattspyrnudeild Njarðvíkur

Njarðvík er áfram í efsta sæt­inu í 2. deild knattspyrnunnar eft­ir sig­ur á Völsungi, 3-2, á Njarðtaksvell­in­um í stórskemmtilegum leik. Stefán Birg­ir Jó­hann­es­son, Atli Freyr Ottesen og Jón Veig­ar Kristjáns­son komu Njarðvík í 3-0 en Völsungar náðu að minnka muninn á loka­mín­út­um leiks­ins með mörkum úr vítaspyrnum.

Víðir Garði tapaði 2-1 gegn Magna, en leikið var á Grenivík.  Víðis­menn voru lengi yfir eft­ir að Helgi Þór Jóns­son skoraði snemma leiks, en Magni náði að skora tvö mörk á síðustu 15 mínútum leiksins. Víðismenn eru í sjöunda sæti deildarinnar með 16 stig.