Naumt tap hjá Keflavík gegn Þór Þ.
Þór Þorlákshöfn lagði Keflavík að velli, 85-82, þegar liðin mættust í TM-Höllinni í Keflavík, í Dominos-deildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi.
Keflvíkingar byrjuðu leikinn betur og leiddu með 8 stigum eftir fyrsta leikhluta, 27-19, en Þórsarar tóku við sér í þeim næsta og höfðu tveggja stiga forystu í hálfleik, 44-42.
Eftir leikhléhlé var mikið jafnræði með liðunum, en Þórsarar náðu góðum spretti undir lok þriðja leikhluta og náðu forskotinu í átta stig fyrir fjórða og síðasta hlutann 67-59. Keflvíkingar komu sterkir inn í fjórða leikhluta og náðu forystu um tíma, en Þórsarar voru sterkari á endasprettinum fóru með þriggja stiga sigur af hólmi 85-82.
Amin Stevens skoraði 31 stig, tók 20 fráköst og átti 5 stoðsendingar, Magnús Már Traustason skoraði 16 stig og Hörður Axel Vilhjálmsson 14.